Nú í júlí verður nóg um að vera á tónlistarsviðinu hér í Stykkishólmi. Fernir tónleikar eru framundan í Stykkishólmskirkju. Fyrstu tónleikar mánaðarins í kirkjunni er með ungum hæfileikamönnum á íslenska djasssviðinu í Tríói Skarkala. Tríóið er skipað þeim Inga Bjarna Skúlasyni píanóleikara og lagahöfundi, Valdimar Olgeirssyni kontrabassaleikara og Óskari Kjartanssyni trommara. Skarkali hefur tvisvar komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur (2013 og 2014) auk þess sem tríóið tók þátt fyrir Íslands hönd í Young Nordic Jazz Comets árið 2013 í Noregi. Ingi Bjarni var tilnefndur árið 2014 til íslensku tónlistarverðlaunanna sem efnilegasti djasstónlistarmaður Íslands. Diskur með efni tríósins er nýkominn út og verður tónlistin á honum m.a. flutt á tónleikunum sem hefjast kl. 20, miðasala er við innganginn og er miðaverð 1500kr. Tóndæmi
Tónleikar í júlí
01 Wednesday Jul 2015
Posted Fréttir
in≈ Comments Off on Tónleikar í júlí